Jón Sigurðsson
EAN13
9788728323403
Éditeur
SAGA Egmont
Date de publication
Langue
islandais
Fiches UNIMARC
S'identifier

Jón Sigurðsson

SAGA Egmont

Livre numérique

  • Aide EAN13 : 9788728323403
    • Fichier EPUB, avec Marquage en filigrane
    0.99
Hér er að finna öll fimm bindin úr ævisögu Jón Sigurðsson. Verkið er viðamikið
og gefur innsýn í afdrifaríka ævi Jóns Sigurðssonar og sjálfstæðisbaráttuna
við Dani. Jón Sigurðsson I-V er ævisaga þjóðarhetju og leiðtoga Íslands í
sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld. Ævisagan var upprunalega gefin út í fimm
bindum af Hinu Íslenzka Þjóðvinafélagi í Reykjavík á árunum 1929-1933. Verkið
er viðamikið og gefur innsýn í afdrifaríka ævi Jóns Sigurðssonar og
sjálfstæðisbaráttuna við Dani. Höfundur bókanna er Páll Eggert Ólason. Páll
Eggert Ólason (1883-1949) var íslenskur doktor og prófessor í sagnfræði. Eftir
stúdentsprófið lauk hann embættisprófi í lögfræði við Háskóla Íslands og hlaut
síðar doktorsnafnbót fyrir rit sitt um Jón Arason. Páll sinnti fjölbreyttum
störfum í gegnum tíðina en þar má helst nefna stöðu bankastjóra
Búnaðarbankans, skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins og bæjarfulltrúa í
Reykjavíkurborg. Þekktastur er Páll þó fyrir fræða- og ritstörf sín sem
skipuðu stóran sess á starfsferli hans. Hann var afkastamikill rithöfundur
enda fróður um sögu Íslands og afar leikinn við heimildavinnu. Ritverk hans
eru bæði yfirgripsmikil og efnisrík en meðal þeirra eru samantekt á Íslenzkum
æviskrám, Ævisaga Jóns Sigurðssonar I-V og Menn og menntir
siðaskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV.
S'identifier pour envoyer des commentaires.